Töframátturinn heldur áfram mánudaginn 20 mars. Að þessu sinni verður viðburðurinn í Hafnarhúsinu
þar sem koma fram þær Magnea Tómasdóttir söngkona og Sólveig Anna Jónsdóttir(nei ekki úr Eflingu!) Píanóleikari. Lagt af stað úr klúbbnum kl. 13:30 og tónleikarnir hefjast kl. 14:00. Mætum öll saman!
Boðað á fund stjórnar með félögum
Fundurinn sem beðið var eftir. Við fáum að vita hvað kom út úr stjórnarfundinum síðastliðnum. Fundurinn byrjar kl. 14:30. Félagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn!