Opnun samsýningarinnar HJARTSLÆTTIR á Borgarbókasafninu Gerðubergi.
Hjörtu eru rauði þráðurinn í þessari sýningu.
Hjartans mál eru stóru málin en líka lítil augnablik milli ástvina. Hjörtu eru rómantísk en geta líka verið hrollvekjandi. Hjörtu tákna ástina en líka líf og dauða. Hjörtu slá í takt, hjúkrunarfræðingur mælir blóðþrýstinginn og hjartaknúsarinn gefur þér bangsa á valentínusardaginn. Meðal sýnenda er Ásta Olsen félagi í klúbbnum Geysi og eru allir velkomnir að mæta á opnunarhátíðina laugardaginn 12. okt á milli 13:00 og 15:00. Hægt verður að skoða sýninguna fram til 16. október. Sjón er sögu ríkari.
SÝNINGIN STENDUR TIL 16. NÓVEMBER
SÝNENDUR
Vigdís Sigurlaug Kjartansdóttir
Jóna Lára Ármannsdóttir
Þorbjörg Ester Finnsdóttir
Ásta Olsen
Ingiríður Halldórsdóttir
Pálína Erlendsdóttir
AÐGENGI
Aðgengi er GRÆNT
Sýningin er á jarðhæð, það er engir þröskuldar við inngagn, það er aðgengilegt salerni á jarðhæðinni og lyfta upp á aðra hæð. Það er blátt bílastæði við innganginn.