Klúbburinn Geysir
Samvinna – Samræður – Samhljómur
Vinnumiðaður dagur
Félagar og starfsfólk klúbbsins ber sameiginlega ábyrgð á rekstrinum.
Klúbburinn byggir starfsemi sína á skipulögðum vinnudegi. Öll starfsemin er eingöngu í þágu klúbbsins og félaga hans. Félagar og starfsfólk skipta með sér verkum og ákveða í sameiningu hvaða störf þarf að inna af hendi.
Störf innan hússins eru unninn í eftirfarandi deildum: Eldhús- og viðhaldsdeild, skrifstofu og atvinnu-og menntadeild. Öll vinna félaga innan klúbbsins er unnin í sjálfboðavinnu.
Deildarfundir
Deildarfundir eru haldnir í hverri deild tvisvar á dag, kl. 09.15 og 13.15. Á deildarfundum er farið yfir stöðu verkefna og félagar velja sér störf sem liggja fyrir og þeir hafa áhuga á að inna af hendi.
Störf innan hússins
Í skrifstofudeildinni eru tölvur til afnota fyrir félaga þar sem þeir geta unnið að margvíslegum verkefnum er tengjast starfsemi og markmiðum klúbbsins.
Verkefni skrifstofudeildar:
- Blaðaútgáfa
- Bréfaskriftir
- Kynningarstarf innan og utan klúbbsins
- Samskipti við klúbba erlendis og Clubhouse International
- Tölfræði er unnin fyrir klúbbinn
- Samfélagsmiðlar: Heimasíða, facebook, instagram
- Styrkumsóknir
- Þýðingar
- Ráðstefnur og þjálfun.
Styður félaga við að ná markmiðum sínum varðandi atvinnu og menntun með því að nýta þau tækifæri sem eru í boði úti í samfélaginu.
Í deildinni fer meðal annars fram atvinnuleit þar sem félagar og starfsmenn vinna að því að ná tengslum við vinnuveitendur. Deildin er eining innan skrifstofudeildar.
Verkefni atvinnu- og menntadeildar:
- Samskipti við skóla
- Stuðningur við námsmenn
- Samskipti við atvinnurekendur og stofnanir
- Almenn upplýsingaöflun og miðlun fyrir námsmenn og þá sem áhuga hafa fyrir námi.
Í eldhúsdeildinni er eldaður fjölbreyttur og góður hádegismatur. Máltíðin kostar 800 krónur. Þeir sem ætla að vera í mat skulu skrá sig fyrir kl 10.00 sama dag.
Verkefni eldhúsdeildar:
- Matreiðsla
- Bakstur
- Frágangur
- Innkaup
- Skipulagning matseðils
- Bókhald
- Veisluhöld
- Matarboð
- Finna uppskriftir
- Matreiðslunámskeið og almenn þrif
- Umsjón með rekstri sjoppunnar.
Deildin er með verkstæði á fyrstu hæð. Þar sem hægt er að sinna smærri verkefnum.
Einnig er þar lager fyrir rekstrarvörur. Í viðhaldsdeildinni er unnið að almennu viðhaldi klúbbhússins eftir því sem því verður við komið, auk smærri verkefna er varða hús- og tölvubúnað. Deildin er eining innan eldhúsdeildar.
Verkefni viðhaldsdeildar eru:
- Viðhald og endurbætur á klúbbhúsinu
- Viðhald húsgagna
- Viðhald, uppfærsla og umsjón á tölvukerfi
- Málningarvinna
- Yfirferð á ljósum
- Þrif utanhúss
- Moka snjó
- Sópa stétt
- Losa sorp
- Umsjón með öryggismálum og eldvarnarbúnaði
- Umsjón með lager
- Þrif og frágangur.
Félagar úr öllum deildum starfa í móttökunni. Þar er m.a. svarað í síma og hringt út til félaga sem þess óska.
Verkefni móttöku:
- Símsvörun
- Hringja út í félaga
- Taka á móti fólki
- Sjá um póstinn
- Fylla á rekka fyrir bæklinga og blöð
- Gagnainnsláttur
- Halda móttökunni hreinni.